Skatta- og bókhaldsráðgjöf

Alhliða bókhalds- og skattaráðgjöf

Almennt

Hjá FBG ráðgjöf færðu alla almenna bókahaldsþjónustu og skattaráðgjöf fyrir þitt fyrirtæki. Við þjónustum lítil og meðalstór fyrirtæki og leggjum áherslu á eins mikla sjálfvirkni og möguleg er nú á tímum. Við erum í samstarfi við Payday.is og notum þeirra bókhaldskerfi, sem er eitt það framsæknasta sem í boði er á markaðnum í dag, til þess að færa bókhaldið fyrir þig. Fyrsta skrefið er að skrá þig í viðskipti hjá okkur og svo hjá Payday. Við getum aðstoðað þig við það. Bókaðu endilega fund með okkur og förum yfir þína stöðu í sameiningu. 

Payday kerfið er byltingarkennd nýjung fyrir þá sem færa bókhald og fyrir stjórnendur og fyrirtækjaeigendur til þess að hafa yfirsýn og ná betra utanumhaldi um reksturinn. Við getum ekki mælt nógu mikið með þessu kerfi. 

Bókaðu fund með okkur strax í dag. 

Við viljum kynnast þér!

Þegar þú kemur í viðskipti til okkar þá er nauðsynlegt fyrir okkur að kynnast þínum rekstri. Við fjárfestum í þér með því að kynnast þér og þínum rekstri, þannig að við getum þjónustað þig með farsælum hætti.

Við gerum við þig samning um þjónustuna sem þú vilt fá hjá okkur. Áður en við gerum það þurfum við hins vegar að uppfylla kröfur laga um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018, með því að framkvæma áreiðanleikakönnun á félaginu þínu. Í því felst að þú svarar nokkrum stöðluðum spurningum.

Eftir því sem við kynnumst félaginu þínu betur, þeim mun betur getum við ráðlagt þér og aðstoðað þig við að ná árangri í lögfylgni og almennum rekstri.

Hafðu samband og ræðum málið. Við gerum bæði föst verðtilboð og vinnum eftir gjaldskrá, hvort sem hentar betur.

Verð

Markmiðið er að fá eins mikla sjálfvirkni og mögulegt er í fjárhagsbókhald viðskiptavina okkar. Sem dæmi þá sparar það gríðarlegan tíma fyrir okkur ef þú sendir alla reikninga inn í kerfið með tölvupósti eða, það sem er enn betra, færð alla reikninga senda rafrænt. Við aðstoðum þig við uppsetningu á kerfinu og tryggjum það að þú hafir góða yfirsýn yfir reksturinn.

Við rukkum annað hvort með föstu tímagjaldi eða með því að rukka fast mánaðargjald ef umfang verkefnisins liggur ljóst fyrir. Ef það er meira, þá er auðvitað bara rukkað meira. En að vera með fast mánaðargjald, sparar líka mikla vinnu hjá okkur.

Færsla bókhaldsins er eitt, svo eru afstemmingar á banka og öllum viðskiptamönnum og lánardrottnum. Allt er þetta unnið jafnt og þétt, í kerfinu sem þú hefur aðgang að. Svo eru vsk. skattskil, umsjón launa og skilagreina vegna skatta og vinnutengdra gjalda. Við sjáum svo um árshlutauppgjör ef þess er þörf og gerum svo ársreikning eða græjum fyrir þig skattskýrslu og notum hnappinn ef félagið er örfélag (velta undir 40 milljónum á ári).

Ráðgjöf

N

Það er alltaf gott að leita sér ráðgjafar varðandi bókhald og skattskil

N

Komdu helst áður en allt er farið í skrúfuna!

N

Það er hjálplegt að ræða málin og skilgreina möguleg álitamál sem gætu komið upp.

Niðurstaðan

Hafðu samband við mig. Við setjumst niður og förum yfir stöðuna.

skrifstofutímar

Alla virka daga frá – 09:00 til 17:00.

Bóka þarf tíma með tölvupósti.

FBG ráðgjöf ehf.

kt.: 450917-0440 

Vsk.: 129215

Hafa samband

Heimilisfang: Súðarvogur 2E.

Sími: 779-0900

Netfang: fbg@fbg.is

Copyright © 2025 FBG ráðgjöf ehf. Allur réttur áskilinn.