Traust lögfræðiráðgjöf

fyrir einstaklinga og fyrirtæki, með sérþekkingu á persónuvernd, vinnuvernd og skattarétti

Þjónusta

FBG ráðgjöf veitir einstaklingum, fyrirtækjum og félögum faglega lögfræðiráðgjöf á afmörkuðum sérsviðum. Áherslan er á skýr svör, lausnamiðaða nálgun og persónulega þjónustu.

Hér að neðan má sjá þau svið sem við sinnum. Smelltu á svið til að lesa nánar, eða hafðu samband og við förum yfir málið þitt saman.

Áreiðanleikakönnun og peningaþvætti

Aðstoð við tilkynningarskylda aðila við að uppfylla skyldur laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, m.a. áhættumat, áreiðanleikakannanir og verklagsreglur.

Bókhald og skattaráðgjöf

Alhliða bókhaldsþjónusta og skattaráðgjöf fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, með áherslu á sjálfvirkni. Við vinnum í bókhaldskerfi Payday og aðstoðum þig við að koma þér af stað.

Dánarbú og erfðamál

Leiðsögn og aðstoð við erfingja eftir andlát: samskipti við sýslumann, val á leið við skipti dánarbús og frágangur einkaskipta.

Félagaréttur, samrunar og yfirtökur

Stofnun félaga, breytingar á félögum, húsfélagaþjónusta, boðun funda og aðstoð við stjórnir. Einnig aðstoð við kaup og sölu lítilla og meðalstórra fyrirtækja, samruna og sameiningar.

Persónuvernd

Ráðgjöf um allt sem viðkemur lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð (ESB) 2016/679. Við greinum stöðuna hjá þínu fyrirtæki og lagfærum það sem þarf, m.a. persónuverndarstefnur, vinnsluskrár og samninga.

Persónuverndarfulltrúi

Við tökum að okkur hlutverk persónuverndarfulltrúa fyrir fyrirtæki og stofnanir: fræðsla til stjórnenda og starfsfólks, eftirlit með því að farið sé að persónuverndarlögum og samskipti við Persónuvernd.

Rafræn vöktun og eftirlitsmyndavélar

Merkingar, skilti og fræðsla vegna rafrænnar vöktunar í samræmi við reglur nr. 50/2023, fyrir fyrirtæki, verslanir og húsfélög.

Lestu greinina: Ert þú með eftirlitsmyndavélar? →

Samningagerð

Gerð og yfirlestur samninga af ýmsu tagi, t.d. vinnslusamninga, þjónustusamninga og kaupsamninga.

Skaðabætur

Ráðgjöf og aðstoð í skaðabótamálum. Nánar á meidsli.is.

Skattaréttur

Skattamál geta verið flókin og breytast ört. Við veitum einstaklingum og fyrirtækjum ráðgjöf á sviði skattaréttar og aðstoð í samskiptum við skattyfirvöld.

Stjórnsýsluréttur og leyfismál

Ráðgjöf og aðstoð í samskiptum við stjórnvöld, t.d. umsóknir um dvalar- og atvinnuleyfi fyrir erlenda íþróttamenn og rekstrarleyfi fyrir veitingahús, þar sem við útbúum öll nauðsynleg gögn.

Vinnuvernd

FBG ráðgjöf er viðurkenndur þjónustuaðili við gerð áætlana um öryggi og heilbrigði á vinnustað, sem öllum atvinnurekendum ber að hafa skv. lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.

Lestu greinina: Hvað gera stjórnendur þegar þeir fá tilkynningu um EKKO? →

Um okkur

FBG ráðgjöf ehf. veitir lögfræðiráðgjöf á nokkrum sérhæfðum sviðum, með sérstaka áherslu á persónuvernd, vinnuvernd, skattarétt og félagarétt. Við leggjum áherslu á heiðarleika, traust og persónulega þjónustu sem er sniðin að þörfum hvers og eins.

Friðjón B. Gunnarsson lögfræðingur lauk ML-gráðu í lögfræði frá Háskólanum á Bifröst árið 2025 og B.Sc.-gráðu í viðskiptalögfræði árið 2023. Meistararitgerð hans fjallar um notkun ábyrgðaraðila á eftirlitsmyndavélum og kröfur persónuverndarlaga, og BS-ritgerðin um heimildir atvinnurekenda til vinnslu persónuupplýsinga um starfsfólk sitt.

Auk lögfræðinnar býr Friðjón yfir áratuga reynslu af eigin rekstri og uppbyggingu fyrirtækja, bæði innanlands og erlendis. Hann er aðstoðarkennari í skattarétti við lagadeild Háskólans á Bifröst og hefur sótt endurmenntun um viðbrögð við EKKO á vinnustað og aðgerðir gegn peningaþvætti.

Í sérverkefnum á sviði vinnuverndar störfum við með viðurkenndum sérfræðingum.

Athugið að FBG ráðgjöf er ekki lögmannsstofa og tekur ekki að sér verkefni sem eingöngu eru á færi lögmanna. Þegar þess þarf vísum við á samstarfslögmenn.

Friðjón B. Gunnarsson

Lögfræðingur (ML)
Sérfræðingur í persónuvernd

Greinar

Fróðleikur og hagnýt ráð um persónuvernd, vinnuvernd og skyldur fyrirtækja.

Ert þú með eftirlitsmyndavélar?

Ert þú með eftirlitsmyndavélar?

Rafræn vöktun með eftirlitsmyndavélum er víða, en margir ábyrgðaraðilar uppfylla ekki kröfur persónuverndarlaga um merkingar og fræðslu. Hvað þarf að gera?

FBG lögfræðiráðgjöf

Lögfræðiráðgjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

HAFA SAMBAND

Stekkjarbakki 6, Reykjavík
Sími: 779-0900
Netfang: fbg@fbg.is

Alla virka daga kl. 09:00–17:00.
Bóka þarf tíma með tölvupósti.

© FBG ráðgjöf ehf. · kt. 450917-0440 · VSK-nr. 129215