Persónuvernd

Greining
Hvernig er persónuvernd háttað hjá þínu fyrirtæki?
Það fyrsta sem þarf að gera er að greina hver staða fyrirtækisins er hvað varðar persónuvernd. Er starfsfólkið meðvitað um þær kröfur sem persónuverndarlög gera til fyrirtækisins? Er virk persónuvernd til staðar hjá fyrirtækinu? Öll fyrirtæki sem vinna með persónuupplýsingar þurfa að hafa virka persónuvernd og uppfylla þær kröfur sem lögin gera til þeirra sem vinna með persónuupplýsingar.
Við greinum stöðuna og sjáum þannig hvað þarf að gera þannig að þitt fyrirtæki uppfylli kröfur laganna. Í því felst áhættumat sem leiðir í ljós þá verkþætti sem þarf að framkvæma eða uppfæra svo vel sé.

Ferlið
Þú hefur samband við okkur. Við tökum fund saman.
Við greinum stöðuna.
Við lagfærum það sem þarf til þess að þú uppfyllir kröfur persónuverndarlaga.
Niðurstaðan
Viðskiptavinir þínir sjá að þér er umhugað um grundvallarréttindi þeirra og frelsi. Þeir sjá ennfremur að þú tekur öryggi þeirra persónuupplýsinga, sem þeir treysta þér fyrir, alvarlega og gerir nauðsynlegar ráðstafanir til þess að allir sem koma að meðferð persónuupplýsinga á þínum vegum þekki þær kröfur sem persónuverndarlöggjöfin gerir til ykkar vegna vinnslunnar, hverju nafni sem hún nefnist.
skrifstofutímar
Alla virka daga frá – 09:00 til 17:00.
Bóka þarf tíma með tölvupósti.

FBG ráðgjöf ehf.
kt.: 450917-0440
Vsk.: 129215
Hafa samband
Heimilisfang: Súðarvogur 2E.
Sími: 779-0900
Netfang: fbg@fbg.is