Peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Skyldur tiltekinna lögaðila

Almennt

Í 1. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 (hér eftir vísað til sem pþl.) er kveðið á um markmið laganna en það er að koma í veg fyrir peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka með því að skylda tiltekna lögaðila sem stunda starfsemi sem kann að verða notuð til peningaþvættis eða fjármögnunar hryðjuverka til að þekkja deili á viðskiptamönnum sínum og starfsemi þeirra ásamt því að tilkynna um það til lögbærra yfirvalda vakni grunur um eða verði þeir varir við slíka ólögmæta starfsemi.

Í 2. gr. pþl. er kveðið á um þá aðila sem framangreind skylda beinist að en þeir eru fjármálafyrirtæki, líftryggingafélög, vátryggingamiðlarar og vátryggingaumboðsmenn, greiðslustofnanir, rafeyrisfyrirtæki, útibú erlendra fyrirtækja sem staðsett eru á Íslandi, umboðs- og dreifingaraðilar fyrirtækja og samsvarandi erlendra fyrirtækja með starfsemi á Íslandi sbr. framangreint, lífeyrissjóðir, gjaldeyrisskiptaþjónusta, þjónustuveitendur sýndareigna, endurskoðunarfyrirtæki, endurskoðendur, skattaráðgjafar, aðilar sem færa bókhald eða sinna bókhaldsþjónustu, lögmannsstofur, lögmenn og aðrir sérfræðingar skv. nánar tilgreindum skilyrðum í 1.-6. tl. m-stafliðar 1. mgr. 2. gr. pþl., fasteignasölur, bifreiðaumboð, fasteignasalar, fyrirtækjasalar, skipasalar og bifreiðasalar og fasteignafélög, leigumiðlarar skv. nánar tilgreindum skilyrðum, listmunasalar eða listmunamiðlarar, skartgripa- og gullsalar, aðilar á sviði fjárvörslu og fyrirtækjaþjónustu. Þá er einnig kveðið á um aðra ótalda starfsemi þar sem lögaðilar og einstaklingar sem í atvinnuskyni eigi viðskipti sem greitt sé fyrir með reiðufé, hvort sem viðskiptin fari fram með einni greiðslu eða fleiri greiðslum sem virðast tengjast hver annarri, að fjárhæð 10.000 Evrur eða meira. Þá skulu einstaklingar eða lögaðilar sem hlotið hafa starfsleyfi á grundvelli laga um happdrætti eða til reksturs fjársafnana og happdrætta á grundvelli sérlaga einnig falla undir lögin ásamt aðilum sem geyma eða eiga viðskipti með listmuni skv. nánar skilgreindum skilyrðum. 

Hvað þarf að gera? 

Í fyrsta lagi þarf að skoða hvort viðkomandi lögaðili falli undir gildissvið pþl. Ef niðurstaðan er á þá leið að lögaðilinn falli undir gildissvið laganna þarf að eiga sér stað áhættumat á starfsemi lögaðilans, samningssamböndum og einstökum viðskiptum til samræmis við ákvæði 5. gr. pþl. Til samræmis við ákvæði 5. gr. a. pþl. skulu tilkynningarskyldir aðilar gera ráðstafanir til samræmis við stærð, eðli, umfang og margbreytileika starfsemi sinnar og hafa skjalfesta stefnu, stýringar og verkferla til að draga úr og stýra áhættu sem stafar af peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka auk áhættu er tengist fjármögnun gereyðingarvopna, sbr. ákvæði laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna. Framangreind stefna, stýringar og verkferlar hvað snýr að þessum þáttum skulu byggjast á áhættumati stjórnvalda og eigin áhættumati tilkynningarskyldra aðila. 

Þá er tilkynningarskyldum aðilum, skv. a-k-lið 1. mgr. 2. gr. pþl., óheimilt að bjóða upp á nafnlaus viðskipti. 

Þá skulu tilkynningarskyldir aðilar, skv. 1. mgr. 8. gr. pþl., kanna áreiðanleika viðskiptamanna sinna til samræmis við ákvæði III. kafla pþl. um áreiðanleikakannanir, m.a. við upphaf samningssambands.

Tilkynningarskyldir aðilar skulu einnig kanna áreiðanleika upplýsinga um núverandi viðskiptamenn sína m.a. þegar breytingar verða á samningssambandinu eða einstökum þáttum þess, sbr. 10. mgr. 10. gr. pþl.

Tilkynningarskyldum aðilum er heimilt að gera samning við úthýsingaraðila eða umboðsmann um að sinna framangreindum skyldum fyrir sína hönd en slíkir aðilar teljast þá hluti af tilkynningarskylda aðilanum, sbr. 6. mgr. 18. gr. pþl. 

Framangreint er aðeins lítill hluti af þeim skyldum sem hvíla á tilkynningarskyldum aðilum skv. pþl. en þ.a.l. færi best á því að taka fund til þess að fara yfir stöðuna og meta hvað þarf að gera til þess að viðkomandi lögaðili uppfylli kröfur laganna.   

Ráðgjöf

N

Það er nauðsynlegt að leita ráðgjafar varðandi lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

N

Það er nauðsynlegt að stjórnendur og starfsfólk hafi þekkingu á ferlinu.

N

framkvæma þarf einfalda eða eftir atvikum aukna áreiðanleikakönnun.

Niðurstaðan

Stjórnvöld hafa m.a. heimild í pþl. til þess að leggja dagsektir og stjórnvaldssektir á tilkynningarskyldan aðila, eftir alvarleika brots gegn lögunum. Það er mjög mikilvægt að grípa strax til aðgerða og framfylgja ákvæðum pþl. ef það hefur ekki þegar verið gert. Hafðu samband og við græjum þetta með þér. 

skrifstofutímar

Alla virka daga frá – 09:00 til 17:00.

Bóka þarf tíma með tölvupósti.

FBG ráðgjöf ehf.

kt.: 450917-0440 

Vsk.: 129215

Hafa samband

Heimilisfang: Súðarvogur 2E.

Sími: 779-0900

Netfang: fbg@fbg.is

Copyright © 2025 FBG ráðgjöf ehf. Allur réttur áskilinn.

skrifstofutímar

Alla virka daga frá – 09:00 til 17:00. 

FBG ráðgjöf ehf.

kt.: 450917-0440 

Vsk.: 129215

Hafa samband

779-0900

fbg@fbg.is

Copyright © 2025 FBG ráðgjöf ehf. Allur réttur áskilinn.