Peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Áreiðanleikakönnun
Áreiðanleikakönnun viðskiptavina fbg ráðgjafar ehf.
Samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 ber FBG ráðgjöf að framkvæma áhættumat á samningssamböndum og einstökum viðskiptum. Við framangreint áhættumat ber FBG ráðgjöf ennfremur að framkvæma áreiðanleikakönnun og eftir atvikum aukna áreiðanleikakönnun á viðskiptavinum sínum og einstökum viðskiptum áður en samningssambandi er komið á eða áður en viðskipti eiga sér stað. Af framangreindu leiðir að verkkaupi þarf að svara þeim spurningum sem að honum er beint í áreiðanleikakönnun og eftir atvikum aukinni áreiðanleikakönnun skv. áhættumati hverju sinni. Kjósi verkkaupi af einhverjum ástæðum að gera það ekki er FBG ráðgjöf óheimilt að eiga viðskipti við verkkaupa.
Til samræmis við framangreindar lögbundnar skyldur FBG ráðgjafar ehf. vinnur FBG ráðgjöf ehf. og eftir atvikum vinnsluaðilar okkar, skv. samningum þar um, persónuupplýsingar um nafn, símanúmer, kennitölu, netfang ásamt upplýsingum um stjórnmálaleg tengsl, þ.m.t. með uppflettingu á listum yfir aðila með stjórnmálaleg tengsl.
Nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga má finna í persónuverndaryfirlýsingu á vef okkar.
Til einstaklinga í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla teljast þeir einstaklingar, innlendir og erlendir, sem eru eða hafa verið háttsettir í opinberri þjónustu, ásamt nánustu fjölskyldumeðlimum þeirra og nánum samstarfsmönnum.
Lista yfir starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa má finna á heimasíðu FME á eftirfarandi vefslóð: https://www.fme.is/eftirlit/eftirlit-med-adgerdum-gegn-peningathvaetti-og-fjarmognun-hrydjuverka/hattsett-opinber-storf/
Til náinna samstarfsmanna teljast a) einstaklingar sem hafa verið raunverulegir eigendur lögaðila með einstaklingi sem er eða hefur verið háttsettur og gegnt opinberri þjónustu eða aðrir þekktir samstarfsmenn; b) einstaklingar sem hafa átt náin viðskiptatengsl við einstakling sem er eða hefur verið háttsettur og gegn opinberri þjónustu; c) einstaklingur sem er einn raunverulegur eigandi lögaðila sem var stofnaður til hagsbóta fyrir einstakling sem er eða hefur verið háttsettur og gegnt opinberri þjónustu.

Áreiðanleikakönnun:
skrifstofutímar
Alla virka daga frá – 09:00 til 17:00.
Bóka þarf tíma með tölvupósti.

FBG ráðgjöf ehf.
kt.: 450917-0440
Vsk.: 129215
Hafa samband
Heimilisfang: Súðarvogur 2E.
Sími: 779-0900
Netfang: fbg@fbg.is