Persónuvernd

Persónuverndarfulltrúi

Umfangsmikið, reglubundið og kerfisbundið eftirlit?

Felst meginstarfsemi þín í vinnsluaðgerðum sem krefjast, sakir eðlis síns, umfangs eða tilgangs, umfangsmikils, reglubundins og kerfisbundins eftirlits með skráðum einstaklingum? 

Felst meginstarfsemi þín í umfangsmikilli vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga? 

Ef svör þín við framangreindum spurningum eru jákvæð, þá gæti verið góð hugmynd að tilnefna persónuverndarfulltrúa. 

Sem persónuverndarfulltrúi hjá þínu fyrirtæki sé ég m.a. um að upplýsa ábyrgðar- og vinnsluaðila og starfsmenn, sem annast vinnslu, um skyldur sínar skv. persónuverndarlögum og veiti þeim ráðgjöf þar að lútandi. Ég fylgist með því að farið sé eftir ákvæðum persónuverndarlaga og stefnum ábyrgðar- og vinnsluaðila varðandi vernd persónuupplýsinga þ.m.t. úthlutun ábyrgðar, vitundarvakningu og þjálfun starfsfólks sem tekur þátt í vinnslustarfsemi og tilheyrandi úttektir. Þá veiti ég ráðgjöf varðandi mat á persónuvernd (MÁP) og fylgist með framkvæmd þess. Ég hef samband við og vinn með eftirlitsstjórnvaldinu (Persónuvernd) varðandi mál sem tengjast vinnslu þ.m.t. fyrirframsamráð og ráðgjöf eftir atvikum vegna vinnslu og annarra málefna. 

Fyrsta skrefið í átt að því að fá mig sem persónuverndarfulltrúa fyrir þitt fyrirtæki er að hafa samband og bóka fund. Í framhaldinu þarfagreinum við og metum umfang þeirrar vinnslu sem á sér stað hjá fyrirtækinu. 

Við gerum svo samning um þá þjónustu sem ég mun inna af hendi sem persónuverndarfulltrúi fyrirtækisins.  

Ferlið

N

Þú hefur samband við okkur. Við tökum fund saman.

N

Við greinum stöðuna.

N

Við lagfærum það sem þarf til þess að þú uppfyllir kröfur persónuverndarlaga.

Niðurstaðan

Viðskiptavinir þínir sjá að þér er umhugað um grundvallarréttindi þeirra og frelsi. Þeir sjá ennfremur að þú tekur öryggi þeirra persónuupplýsinga, sem þeir treysta þér fyrir, alvarlega og gerir nauðsynlegar ráðstafanir til þess að allir sem koma að meðferð persónuupplýsinga á þínum vegum þekki þær kröfur sem persónuverndarlöggjöfin gerir til ykkar vegna vinnslunnar, hverju nafni sem hún nefnist.  

skrifstofutímar

Alla virka daga frá – 09:00 til 17:00.

Bóka þarf tíma með tölvupósti.

FBG ráðgjöf ehf.

kt.: 450917-0440 

Vsk.: 129215

Hafa samband

Heimilisfang: Súðarvogur 2E.

Sími: 779-0900

Netfang: fbg@fbg.is

Copyright © 2025 FBG ráðgjöf ehf. Allur réttur áskilinn.