Persónuvernd

Framúrskarandi
Ábyrgðaraðilar sem veita framúrskarandi fræðslu vegna rafrænnar vöktunar með eftirlitsmyndavélum:
Eftirfarandi aðilar veita framúrskarandi fræðslu um þá rafrænu vöktun eftirlitsmyndavéla sem þeir viðhafa á vöktuðum svæðum í sínum rekstri.
Að vera framúrskarandi ábyrgðaraðili þýðir að þú tekur persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga alvarlega og gerir allt sem í þínu valdi stendur til þess að tryggja að grundvallarréttindi og frelsi einstaklinga séu ekki brotin við vinnslu persónuupplýsinga hjá þínu fyrirtæki.
Í því felst að þú ert með merkingar til staðar áður en einstaklingur stígur inn í sjónsvið myndavélar eða á hið vaktaða svæði, sem tilkynnir honum að rafræn vöktun eftirlitsmyndavéla sé viðhöfð, hver sé ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinganna og hvernig megi nálgast viðbótarfræðslu vegna vöktunarinnar. Slíkt er gert með QR-kóða og viðbótarfræðslu sem er sett á áberandi stað í hinu vaktaða rými. Þegar einstaklingurinn skannar QR-kóðann, opnast vefsíða hjá ábyrgðaraðila þar sem viðbótarupplýsingarnar eru listaðar upp.

Ferlið
Þú hefur samband við okkur. Við tökum fund saman.
Við greinum stöðuna.
Við lagfærum það sem þarf til þess að þú uppfyllir kröfur persónuverndarlaga.
Niðurstaðan
Viðskiptavinir þínir sjá að þér er umhugað um grundvallarréttindi þeirra og frelsi. Þeir sjá ennfremur að þú tekur öryggi þeirra persónuupplýsinga, sem þeir treysta þér fyrir, alvarlega og gerir nauðsynlegar ráðstafanir til þess að allir sem koma að meðferð persónuupplýsinga á þínum vegum þekki þær kröfur sem persónuverndarlöggjöfin gerir til ykkar vegna vinnslunnar, hverju nafni sem hún nefnist.
skrifstofutímar
Alla virka daga frá – 09:00 til 17:00.
Bóka þarf tíma með tölvupósti.

FBG ráðgjöf ehf.
kt.: 450917-0440
Vsk.: 129215
Hafa samband
Heimilisfang: Súðarvogur 2E.
Sími: 779-0900
Netfang: fbg@fbg.is