Sifja- og erfðaréttur

Erfðamál
Almennt
Öll vitum við að sú stund mun renna upp er veru okkar á þessari jörð mun ljúka. Í samfélagi nútímans er samsetning fjölskyldna oft á tíðum öðruvísi en hún var hér á árum áður. Óhætt er að fullyrða að upp kunni að koma alls konar lögfræðileg álitamál þegar einhver fellur frá. Það er því mikilvægt að hugsa út í það tímanlega hver staða fólks er, hvort sem það er í óvígðri sambúð eða hjónabandi. Þá er gott að hafa lögfróðan aðila til þess að leita ráðgjafar hjá, án þess að slíkt setji fjárhag manns beinlínis í hættu.

Erfðalög nr. 8/1962.
Í erfðarétti gilda erfðalög nr. 8/1962. Í erfðalögum er kveðið á um meginhugtök erfðaréttar. Þau eru erfingi, lögerfingi, skylduerfingi, arfleifandi, arfur, lögarfur, bréfarfur, bréferfingi, dánarbeðsgjöf, dánargjöf, arfleiðsluheimild, arfleiðsluhæfi, erfðaskrá, lífsgjöf.
Erfðir skiptast í I. erfð en þar eru maki og niðjar (börn og barnabörn), II. erfð en þar eru maki arfleifanda, foreldrar og niðjar foreldra, III. erfð en þar eru föðurforeldrar og móðurforeldrar arfleifanda og börn þeirra. Ef enginn framangreindra aðila er til staðar erfir ríkissjóður arfleifanda.
Hverjir eru lögerfingjar?
Í 1. mgr. 1. gr. erfðalaga er að finna skilgreiningu á því hverjir teljast lögerfingjar arfleifanda. Í 1. tölul. eru börn arfleifanda og aðrir niðjar. Í 2. tölul. eru foreldrar arfleifanda og niðjar þeirra. Í 3. tölul. eru foreldrar hvors foreldris arfleifanda um sig og börn þeirra. Í 4. tölul. er maki arfleifanda.
Hvað er I. erfð?
Í 1. mgr. 2. gr. erfðalaga er kveðið á um að maki erfi 1/3 hluta eigna, þegar börn eru á lífi, en börnin erfi 2/3 hluta eigna að jöfnu. Ef arfleifandi á ekki maka, taka börn og aðrir niðjar allan arf.
Hvað er II. erfð?
Í 1. mgr. 3. gr. erfðalaga er kveðið á um að ef arfleifandi eigi enga niðja á lífi, taki maki allan arf. Í 2. mgr. sömu greinar er kveðið á um að ef maka sé ekki til að dreifa falli allur arfur til foreldra að jöfnu. Í 3. mgr. sömu greinar er kveðið á um að ef báðir foreldrar arfleifanda séu látnir taki börn eða aðrir niðjar hvors foreldris um sig þann arf, sem því hefði borið.
Hvað er III. erfð?
Í 1. mgr. 4. gr. erfðalaga er kveðið á um að ef enginn erfingi, skv. 2. eða 3. gr. sé á lífi, taki föðurforeldrar og móðurforeldrar sinn helming arfs hvort.
Óskipt bú
Í II. kafla erfðalaga er kveðið á um setu í óskiptu búi.
Í 1. mgr. 7. gr. erfðalaga er kveðið á um að eftir lát annars hjóna eigi hitt rétt til setu í óskiptu búi með niðjum beggja nema hið látna hafi mælt svo fyrir í erfðaskrá að skipti skuli fara fram.
Þá er kveðið á um það í 1. mgr. 8. gr. erfðalaga að því hjóna sem lengur lifi sé heimilt að sitja í óskiptu búi með ófjárráða niðjum látins maka síns, sem ekki eru niðjar þess, ef sá eða þeir sem fara með forsjá eða lögráð hinna ófjárráða niðja veita samþykki sitt til þess, enda hafi hið látna ekki mælt svo fyrir í erfðaskrá að skipti skuli fara fram. Ef það hjóna sem lengur lifir fer með forsjá eða lögráð ófjárráða stjúpniðja sinna á það þó rétt á setu í óskiptu búi eins og mælt er fyrir um í 7. gr. Í 2. mgr. sömu greinar er kveðið á um að veiti fjárráða stjúpniðjar samþykki sitt til þess sé því hjóna sem lengur lifi heimilt að sitja í óskiptu búi. Í 3. mgr. sömu greinar er kveðið á um að það hjóna sem lengur lifir eigi rétt á setu í óskiptu búi með stjúpniðjum sínum, hvort sem þeir eru fjárráða eða ófjárráða, án þess að aflað sé samþykkis skv. 1. eða 2. mgr., ef hið látna hefur mælt fyrir um þann rétt í erfðaskrá.
Hvaða eignir falla undir óskipt bú?
Í 1. mgr. 11. gr. erfðalaga er kveðið á um að hjúskapareignir beggja hjóna og séreign, sem skv. ákvæðum laga eða kaupmála skuli hlíta reglum um hjúskapareign að öðru hjóna látnu, teljist til óskipts bús. Þá skuli sjálfsaflafé og annað verðmæti, sem sá eignast sem situr í óskiptu búi, renna til búsins nema það eigi að lögum að falla til séreignar hans.
Ráðgjöf
Það er alltaf gott að leita sér ráðgjafar varðandi erfðamál.
Maður á alltaf að gera erfðaskrá og eftir atvikum kaupmála í upphafi sambands.
Það er hjálplegt að ræða málin og skilgreina möguleg álitamál sem gætu komið upp.
Niðurstaðan
Hafðu samband við mig. Við setjumst niður og förum yfir stöðuna og ef niðurstaðan sýnir að þörf sé á því að útbúa erfðaskrá og/eða kaupmála þá útbý ég þau skjöl fyrir þig.
skrifstofutímar
Alla virka daga frá – 09:00 til 17:00.
Bóka þarf tíma með tölvupósti.

FBG ráðgjöf ehf.
kt.: 450917-0440
Vsk.: 129215
Hafa samband
Heimilisfang: Súðarvogur 2E.
Sími: 779-0900
Netfang: fbg@fbg.is