Um okkur

Starfsfólkið okkar

Friðjón B. Gunnarsson, lögfræðingur

Friðjón Björgvin Gunnarsson er menntaður lögfræðingur frá Háskólanum á Bifröst. Hann býr yfir áratuga reynslu af rekstri og uppbyggingu fyrirtækja, bæði innanlands og erlendis. 

Árið 2023 útskrifaðist Friðjón með B.Sc gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst og árið 2025 útskrifaðist Friðjón með fullnaðarpróf í lögfræði frá Háskólanum á Bifröst.

Lokaritgerð Friðjóns í grunnnáminu fjallar um heimildir atvinnurekenda til vinnslu persónuupplýsinga um starfsfólk sitt.

Lokaritgerð Friðjóns í meistaranáminu fjallar um notkun ábyrgðaraðila á eftirlitsmyndavélum og kröfur persónuverndarlaga þar að lútandi. Hann varði ritgerðina í maí 2024.

Persónuvernd er Friðjóni hugleikin, enda snertir hún allt okkar daglega líf. Friðjón er sérfræðingur í persónuvernd en önnur svið lögfræðinnar eru einnig mjög áhugaverð eins og t.d. Samningaréttur, Kröfuréttur, Félagaréttur, Sifja- og erfðaréttur, Skaðabótaréttur og Evrópuréttur. Þá er Stjórnsýsluréttur einstaklega skemmtilegur og krefjandi enda snýr hann einna helst að lögskiptum stjórnvalda og borgaranna.

Friðjón er giftur, þriggja barna faðir og býr í Breiðholtinu í Reykjavík. Gæðastundir með fjölskyldu og vinum, ásamt útiveru og ferðalögum, er það sem lífið snýst um. Friðjón leggur mikla áherslu á heiðarleika og traust í lífinu og reynir að láta gott af sér leiða í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur.

Menntun:

2025: Magister Legum (ML) gráða í lögfræði frá Háskólanum á Bifröst.

2023: B.Sc. gráða í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst.

2018: Leiðsögumaður frá Leiðsöguskóla Íslands í MK.

2002: Stúdentspróf frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla – félagsmálabraut. 

Starfsferill: 

Febrúar 2025-: Lögfræðingur hjá FBG ráðgjöf ehf. 

Janúar 2023-janúar 2025 : Lögfræðiráðgjöf meðfram laganámi.

September 2016- : Sjálfstætt starfandi leiðsögumaður. 

September 1999-2016: Sjálfstætt starfandi við eigin rekstur. 

Félagsstörf: 

Friðjón hefur í gegnum alla sína skólagöngu verið virkur í félagsstörfum. Hann var m.a. í nemendaráði í FÁ, formaður félags laganema í Háskólanum á Bifröst (HB), fulltrúi meistaranema í deildarráði lagadeildar HB,  fulltrúi meistaranema í háskólaráði HB og forseti nemendafélags HB. Þá hefur Friðjón unnið margvísleg sjálfboðaliðastörf fyrir íshokkídeild Skautafélags Reykjavíkur, þar sem dætur hans æfa allar íshokkí hjá félaginu.

Þá hefur Friðjón fljótlega störf sem sjálfboðaliði hjá Rauða Krossi Íslands í verkefninu ,,Aðstoð eftir afplánun” sem lesa má nánar um hér: https://www.raudikrossinn.is/verkefni/innanlandsverkefni/heilbrigdi-og-velferd/adstod-eftir-afplanun/  

Endurmenntun

Febrúar 2025: Viðbrögð stjórnenda við tilkynningu um EKKO á vinnustað. Endurmenntun Háskóla Íslands. 

Febrúar 2025: Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Endurmenntun Háskóla Íslands.

 

Sigurður sigurðsson, verkfræðingur

Sigurður hefur víðtæka reynslu sem sérfræðingur og stjórnandi á sviði framleiðslu-, gæða-, öryggis-, áhættu- og verkefnastjórnunar. Hann hefur unnið mikið í alþjóðlegu umhverfi, þar sem gerðar eru ríkar kröfur um fagmennsku og þekkingu á því sem nýjast er á hverjum tíma. Hann fylgist vel með í sínu fagi og leggur áherslu á að halda við menntun sinni og færni. Hann hefur viðurkenningu Vinnueftirlitsins sem sérfræðingur við gerð áætlunar um öryggi og heilbrigði á vinnustöðum, með áherslu á vélar og tæki. Þá hefur hann tilnefningu Dómstólasýslunnar sem sérfróður meðdómsmaður. 

Menntun:

2011: MSc. gráða í Pharmaceutical Engineering frá University of Manchester, Manchester, Bretlandi.

1993: B.Sc. gráða í Iðnaðarverkfræði með sérhæfingu í gæðaverkfræði frá University of Iowa, Iowa City, Iowa, U.S.A.

 

Starfsferill: 

Frá janúar 2025: FBG ráðgjöf ehf. – Sérfræðingur í vinnuvernd við gerð áætlana um öryggi og heilbrigði á vinnustöðum.

Frá apríl 2014 – ágúst 2024: Vinnueftirlit Ríkisins – Focal Point Manager – Fagstjóri áhættumats – svæðisstjóri suðvestursvæðis. Tengiliður, „Focal Point Manager“ við EU-OSHA (Evrópsku vinnuverndarstofnunina). Umsjón með rafrænu áhættumati á netinu, „OiRA“. Ýmis verkefni sem varða áhættumat og -stjórnun, sem og tengd verkefni s.s. við rannsókn frávika/slysa. Önnur sérfræðiverkefni s.s. sérfræðivinna vegna persónuhlífa, vinna við þýðingu á ÍST ISO 45001:2018 staðlinum á vegum Staðlaráðs. Starf svæðisstjóra Suður- og Vesturlands var lagt niður við umfangsmiklar skipulagsbreytingar árið 2017. 

Frá júlí 2013 – mars 2014: Sjálfstæð ráðgjöf á sviði rekstrar- og iðnaðarverkfræði, s.s. við straumlínu og stjórnun, sem og aðstoð við að uppfylla kröfur ,,regluverksins” (CE merkingar, matvælareglugerð og GMP).

 Frá febrúar 2007 – júní 2013: Mannvit (COWI). HRV. Sérfræðingur í gæða- og áhættustjórnun. Gæðastjórnun í stórum verkefnum, CE vottun búnaðar og áhættustjórnun (capital risk management). Gæðastýring og eftirfylgni með innkaupa- og verksamningum, m.a. stórum (um 3 milljarða.) samningi um reykhreinsibúnað frá Kína. Gerð gæða- og verkefnahandbókar vegna breytinga hjá ÍSAL (Rio Tinto Alcan) og til undirbúnings að álveri í Helguvík (Century Aluminum).

Frá febrúar 2006 – janúar 2007: Alcoa, Fjarðaál. Ferileigandi – Verkefnastjóri. Skipulag og uppsetning ferla við framleiðslu á fullunninni afurð. Verkefnastjórnun við gerð staðla um merkingar o.fl. í verksmiðjunni (“Visual Factory”), TPM (altækt framleiðnistýrt viðhald). Umfangsmesta verkefnið var samhæfing og aðstoð við undirverkefni sem vörðuðu fyrstu skrefin í rekstri álversins.

Frá júní 2005 – janúar 2006: Rafhönnun (COWI). HRV. Öryggisfulltrúi. Tímabundið starf við stækkun álvers Norðuráls á Grundartanga. Gerð skjala og úrvinnsla gagna er tengjast öryggismálum.  Greining frávika og eftirfylgni með úrbótaaðgerðum. Öryggiskerfið fylgdi OHSAS 18001 staðlinum.

Frá Mars 2004 – júní 2005: Actavis Group. Sérfræðingur í gildingum. Prófanir og staðfesting á virkni ýmiss stoðbúnaðar við lyfjaframleiðslu og gerð „layouts“. Meðal verkefna voru prófanir á loftræsikerfi, þrýstiloftskerfi o.fl. á Möltu og iðnaðarverkfræðileg samræming á hönnun tilraunaverksmiðju („Pilot plant“) í Hafnarfirði.

Frá janúar 2003 – febrúar 2004: Ráðgjöf á sviði gæðastjórnunar. Sjálfstæður ráðgjafi við ólík verkefni s.s. ýmis verkefni fyrir tæknideild Delta hf. (nú Actavis hf.) auk framlegðarútreikninga fyrir Vilko, Blönduósi.

Frá janúar 2001 – desember 2002: Rafhönnun (COWI). Gæðastjóri. Ábyrgur fyrir þróun, uppsetningu og viðhaldi á endurbættu gæðakerfi fyrirtækisins samkvæmt ISO 9001 staðlinum.  Leiddi starf gæðahóps í nánu samstarfi við stjórnendur fyrirtækisins.  

Frá júní 1997 – ágúst 1999: Delta (Actavis). Umsjón með gæðavottunarvinnu. Umsjón með kvörðunarmálum fyrirtækisins auk fleiri verkefna. Alhliða verkefnavinna á sviði gæðamála. Frá apríl 1998 leiddi ég starfshóp er vann að gæðavottun samkvæmt GMP (Good Manufacturing Practice) og FDA (Food and Drug Administration) á framleiðslubúnaði fyrirtækisins.

Frá júní 1993 – júní 1997: Ráðgjöf á sviði gæðastjórnunar.  Á meðal helstu verkefna voru:

Lyfjaverslun Íslands, Reykjavík. Umsjón með prófunum og vottun á búnaði til lyfjaframleiðslu.

Brauðgerð Kr. Jónssonar & Co., Akureyri. Unnið við uppskriftakerfi, framlegðarútreikninga auk GÁMES (HACCP) kerfis..

Kaupfélag Húnvetninga / Sölufélag Austur Húnvetninga, Blönduósi. Framlegðarútreikningar, gerð layouts og val á tækjum.

Efnaverksmiðjan Sjöfn, Akureyri. Hreinlætisáætlanir og ráðgjöf til fyrirtækja í nánast öllum greinum matvælaiðnaðar.

Endurmenntun og þjálfun: 

National Safety Council, Spring Conference Rosemount Il (Chicago). Námskeið um rannsókn slysa, einn dagur. Ráðstefna og fagsýning, tveir dagar í maí 2024.

The Health and Safety Event, Birmingham 3ja daga ráðstefna og fagsýning. Þarna er kynnt það sem efst er á baugi fyrir þá sem starfa i faginu. Hef sótt þessa ráðstefnu í apríl 2019, september 2021, apríl 2022, apríl 2023 og apríl 2024.

EU OSHA. Sérsniðin þjálfun í forritun og umsjón með OiRA, rafrænu áhættumati á netinu. Bilbao, apríl 2018 og feb. 2019.
NEBOSH „International General Certificate“, um 133 tímar, lokið í febrúar 2018. RRC International , www.rrc.co.uk .

Þekkingarmiðlun ehf. „Erfið starfsmannamál“, í nóvember 2016.

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og Félags forstöðumanna ríkisstofnana, Námskeið í stjórnsýslurétti fyrir starfsmenn ráðuneyta, ríkisstofnana og sveitarfélaga samtals 54 tímar í mars 2016.

OHSAcademy (www.oshatrain.org/), lokið við námsleið “Occupational Safety and Health Professional“ samtals 25 námskeið í fjarnámi sem taka mið af bandarískum kröfum, 132 tímar, lokið í september 2015.

Danska vinnueftirlitið og Danska rannsóknarstofnunin í vinnuverndarmálum, 1 dagur í apríl 2015.

TapRoot ® „Advanced Root Cause Analysis Team Leader Training“, 5 daga námskeið í Reykjavík í október 2014.

Vinnueftirlit ríkisins. nokkur námskeið um vinnuvernd, samtals 5 dagar á árinu 2014.

Samtök vinnueftirlitsstofnana á Norðurlöndunum. 3ja daga ráðstefna í Stokkhólmi um sjálfbært atvinnulíf í maí 2014.

University of Michigan: „Understanding and Improving the US Healthcare System“, Coursera fjarnámskúrs, nóvember 2013.

Hong Kong University of Science and Technology.“ A New History for a New China, 1700-2000: New Data and New Methods“. Coursera fjarnámskúrs í september 2013.

University of Iowa, 16A-153 „USA in a World at War 1931-1945“, (Fjarnám), maí 2013. (Námskeið f. framhaldsnema, 3 sh.).

Institute of Industrial Engineering. Árleg ráðstefna í maí 2012 í Orlando, FL, hélt erindi “Qualitative Risk Assessment with FMEA.” (Failure mode and effect analysis.)

Staðlaráð, námskeið „CE-merking véla – Hvað á að gera og hvernig?“ 2 dagar í febrúar 2012.

Institute of Industrial Engineering. Árleg ráðstefna í maí 2011 í Reno, NV, hélt erindi “Cost and Schedule Risk Management in Capital Projects.”

Primavera inc. Tvö 2ja daga námskeið í verkefnastjórnun í London og Reykjavík 2007. Tvö netnámskeið 2006.

Alcoa. Þriggja vikna þjálfun í ABS o.fl. (Alcoa Business System) Sao Luis, Brasilíu í maí 2006.

Hammer and Company, Boston (www.hammerandco.com). „Process Design and Implementation: Reengineering and Change Management“, 4 dagar í maí 2006. „Managing the Process Enterprise. Principles and Practice“, 2 dagar í apríl 2006.

Alcoa University, Dechambault, Kanada. „ABS“, 4 dagar í febrúar 2006.

Snertill, þjónustuaðili fyrir Autodesk. AutoCAD 2004, 4 dagar í mars 2004 og framhaldsnámskeið, 2 dagar í júní 2004.

British Standard Institute, London. „Process Management Auditing for ISO 9001:2000“, 2ja daga námskeið í nóvember 2002.

Institute of Industrial Engineers. „Modern Project Management“, Orlando USA, eins dags námskeið í maí 2002.

Institute of Industrial Engineers. Árleg ráðstefna, Orlando USA, 3 dagar í maí 2002 og Dallas USA, 3 dagar í maí 2001.

Endurmenntun Háskóla Íslands. „Framkvæmd gæðaúttekta“, 2 dagar í febrúar 2001.

Iðntæknistofnun Íslands. „Leiðbeinendaþjálfun“, 2 dagar í janúar 2000.

Stjórnendaþjálfun Gallups, frá september 1999 til desember 2000. Fékk verðlaun fyrir hæstu einkunn á lokaprófi.

Institute of Industrial Engineers (http://www.iise.org/Home/). Félagi („Senior member“) síðan í mars 2000.

 

skrifstofutímar

Alla virka daga frá – 09:00 til 17:00.

Bóka þarf tíma með tölvupósti.

FBG ráðgjöf ehf.

kt.: 450917-0440 

Vsk.: 129215

Hafa samband

Heimilisfang: Súðarvogur 2E.

Sími: 779-0900

Netfang: fbg@fbg.is

Copyright © 2025 FBG ráðgjöf ehf. Allur réttur áskilinn.